Volcano Trail Run - Þórsmörk
For information in English please click here!
Laugardaginn 12. september árið 2020 fer fram í sjöunda sinn utanvegahlaupið Þórsmörk Volcano Trail Run. Hlaupið er opið öllu áhugafólki um utanvega- og fjallahlaup.
Ræsing 12. september 2020 kl 13:00 við skála Volcano Huts í Húsadal í Þórsmörk. Hlaupið endar á sama stað.
>> Hér má nálgast Facebook síðu hlaupsins
Brautin: Tindfjallahringur
12 km hlaupið hefst við skála Volcano Huts í Húsadal í Þórsmörk og hlaupið er inn Húsadalinn áleiðis upp Laugaveginn. Þegar komið er upp úr Húsadal er beygt af leið til hægri í áttina að Langadal og farið af stígnum upp á Slyppugilshrygg og meðfram honum þar til stígurinn liggur niður í Slyppugilið. Þá er beygt til vinstri áleiðis að Tindfjallasléttu og svo niður Stangarháls að Stóraenda. Þaðan er hlaupið eftir Krossáraurum að Langadal og stefnan tekin upp Valahnúk (275 m hækkun) og niður aftur að vestanverðu að endamarki í Húsadal.
Hér má sjá leiðina á korti og hér má svo einnig hlaða niður GPX skrá með leiðinni.
Skráning
Opnað hefur verið fyrir skráningu á hlaup.is og eru þátttökugjöld sem hér segir:
Skráningar frá 1.apríl - 30.júní: kr. 7.900
Skráningar frá 1.júlí - 10.september: kr. 8.900
Skráningar frá 11.september - 15. september: kr. 12.900
Lokað verður fyrir skráningar kl 12:00 þann 14. september.
Innifalið í þátttökugjaldi er aðgangur að sturtum, gufubaði og baðlaug eftir hlaupið en einnig er hægt að bóka gistingu í Húsadal hér á vefsíðunni
Athugið að hámarksfjöldi í hlaupin fyrir árið 2020 er 250 manns
Verðlaun
Allir þátttakendur fá verðlaunapening/minningargrip þegar þeir koma í mark
Verðlaun verða veitt fyrir þrjú fyrstu sæti karla og kvenna
Ábyrgð
Hlaupið er haldið af Volcano Huts í Húsadal í Þórsmörk. Ábendingar og fyrirspurnir er varða hlaupið sendist á ([email protected])
Skilmálar
Við Skráningu í Volcano Trail Run og samþykkir þátttakandi þar með skilmála hlaupsins.
Skráður þátttakandi eru ábyrgur fyrir gögnum sem honum eru afhent vegna hlaupsins (ss. hlaupanúmer). Óheimilt er að láta þriðja aðila fá þau gögn. Það er ekki hægt að breyta skráningu á einu nafni yfir í annað, færa skráningu yfir á annað hlaup eða annað ár.
Endurgreiðsla
Endurgreiddur er hluti þátttökugjalds vegna forfalla ef óskað er eftir því sem hér segir:
Fyrir 1.júlí: 50% endurgreiðsla
Ósk um endurgreiðslu þarf að berast á netfangið [email protected]. Gefa þarf upp fullt nafn, kennitölu, upplýsingar um bankareikning og símanúmer, auk rafrænnar greiðslukvittunar sem berst á þitt netfang við skráningu.
Aðrar upplýsingar
Brautarverðir verða á völdum stöðum á leiðinni. Stígur er greinilegur mestan hluta leiðarinnar og með stikum.
Engar drykkjastöðvar verða en vatn rennur í lækjum hér og þar meðfram leiðinni þar sem hægt er að fylla á brúsa.
Nánari upplýsingar og skráning á [email protected].